27 september 2009
10 febrúar 2009
20 nóvember 2008
hummm
Ég er búin að vera í miklum vandræðum þessa daganna með sjálfan mig, hausinn á mér er á fullu, ég get ekki sofnað á kvöldin því ég get ekki hætt að hugsa.
Það sem er að angra mig þessa daganna er næsta ár... ég er að klára MMS næsta vor og veit ég að það verður ekki um vinnu að fá fyrir okkur hér á skerinu og neita ég að fara að vinna við e-d sem er ekki námstengt... er komin með nóg af því. Þess vegna er ég mikið að spá í að fara í skóla, hér heima eða úti og jafnvel ef það gengur ekki, fara þá bara út að vinna og læra tungumál.
En það sem kemur á móti því að fara út er helv** gengið! Þetta er ekki beint hentugur tími núna og er eiginlega bara frekar leiðinlegt að hugsa um það að kannski á maður bara ekki eftir að hafa efni á því að fara út.
Svo finnst mér leiðinlegast í heimi að leita af skólum, gera allar umsóknirnar. Mér finnst líka svo rosalega erfitt að vita hvar ég á að leita, hvaða skólar eru góðir....
Væri mest til í ef hægt væri að ráða manneskju í að gera pappírsvinnuna fyrir sig. Djöfull væri það næs :)
Það eru örugglega fleirri með sama vandamál og ég þessa daganna.
Svo er maður alltaf að heyra af fleirrum og fleirrum sem eru að missa vinnuna sína.
Þetta ástand er bara hræðilegt!
skrifað af BJÖRG klukkan 00:07 4 athugasemdir
09 október 2008
Litla stelpan
Umhverfið verður svart hvítt á helming myndarinnar.
Ég leyfi ykkur að sjá þegar ég er komin lengra með umhverfið.
Ég bý hana til í 3 víddar forriti.skrifað af BJÖRG klukkan 20:06 1 athugasemdir
Flokkar: skólinn
08 október 2008
Veturinn er kominn....
Þegar það er farið að kólna og dimma finnst mér voða notarlegt að sitja uppí sófa, vinna í tölvunni, horfa á sjónvarpið eða lesa góða bók. Njóta þess að vera til. Vetrartíminn var aldrei minn uppáhalds tími en núna síðustu árin hef ég fundið fyrir einhverskonar ró sem kemur með vetrinum. Það er líka svo voða notarlegt að koma inn úr kuldanum inní heitt hús.
Ég veit ekki hvað veldur því, en um leið og veturinn er kominn hef ég oft mikla löngun til að lita á mér hárið dökkt. Á sumrin er það andstæðan því þá lita ég oftast á mér hárið ljóst.
Ég var rétt í þessu að koma úr litun og þegar ég fór að hugsa hvenær ég litaði hárið á mér síðast dökkt fattaði ég að það var nákvæmlega í sömu viku fyrir ári síðan. Algjör tilviljun.
skrifað af BJÖRG klukkan 22:49 1 athugasemdir
02 október 2008
New York
Nokkrar myndir frá New York ferðinni okkar stelpnanna... þessi ferð var bara geggjuð og er ég orðin enn meira ástfangin af Manhattan!
skrifað af BJÖRG klukkan 02:08 1 athugasemdir
Flokkar: útlönd












